MMR kannaði nýlega fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina. Samkvæmt niðurstöðum könnunar MMR sem framkvæmd var dagana 15. til 22. júlí mældust Píratar og Sjálfstæðisflokkurinn með mest fylgi. Fylgi Pírata mældist nú 26,8%, borið saman við 24,3% í síðustu könnun (sem lauk 4. júlí) og Sjálfstæðisflokkurinn mældist nú með 24,0% fylgi, borið saman við 25,3% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri-grænna dalaði nokkuð frá síðustu mælingum og stendur nú í 12,9% borið saman við 18,0% í síðustu könnun og 17,2% þar áður (lauk 16. júní).
Viðreisn bætti við sig nokkru fylgi frá síðustu könnun og mælast nú með 9,4% fylgi, borið saman við 6,7% í síðustu könnun.
Samfylkingin mældist nú með um 8,4% fylgi, borið saman við 10,9% í síðustu könnun og Framsóknarflokkurinn mældist með 8,4% fylgi, borið saman við 6,4% í síðustu könnun.
Björt framtíð mældist nú með 3,9% fylgi, borið saman við 2,9% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist um og undir 2%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,2%), myndu skila auðu (5,1%), myndu ekki kjósa (1,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 33,9% sem er sami stuðningur og í síðustu könnun (sem lauk þann 4. júlí síðastliðinn) og mældist 34,8% í könnuninni þar áður (lauk 16. júní síðastliðinn).
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 82,5% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 906 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 15. til 22. júlí 2016