Alþingiskosningar

|

Nokkur hreyfing hefur verið verið á fylgi flokka síðustu misserin. Samkvæmt nýjustu könnun MMR á fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina sem framkvæmd var á tímabilinu 27. júní til 4. júlí 2016 mældist fylgi Sjálfstæðisflokksins nú 25,3%, borið saman við 21,3% í síðustu könnun og fylgi Pírata mældist nú 24,3%, borið saman við 27,0% í síðustu könnun (sem lauk þann 16. júní síðastliðinn). 

Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 18,0% borið saman við 17,2% í síðustu könnun og 14,9% þar áður og fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,9% borið saman við 10,4% í síðustu könnun og 7,4% þar áður.

Viðreisn mældist nú með 6,7% fylgi, borið saman við 6,5% í síðustu könnun og mældist því með sambærilegt fylgi og Framsóknarflokkurinn sem mældist nú með 6,4% fylgi, borið saman við 11,4% í síðustu könnun.

Björt framtíð mældist nú með 2,9% fylgi sem er hið sama og í síðustu könnun og Sturla Jónsson mældist með 2,0% fylgi, borið saman við 1,2% í síðustu könnun.

Fylgi annarra flokka mældist um og undir 1%.


1606 2 fylgi 1 .png

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,9%), myndu skila auðu (3,1%), myndu ekki kjósa (1,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,7%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

 

Þróun yfir tíma

1602 2 fylgi 02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 33,9% en mældist 34,8% í síðustu mælingu (sem lauk þann 16. júní síðastliðinn) og 36,8% í könnuninni þar áður (lauk 31. maí síðastliðinn).

1606 2 support 1  

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 82,5% afstöðu til spurningarinnar. 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 924 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 27. júní til 4. júlí 2016