ESB

|

Dagana 6. til 9. maí kannaði MMR afstöðu almennings gagnvart því að Ísland gangi í Evrópusambandið (ESB). Í ljós kom að yfir helmingur svarenda (51,4%) kváðust andvígir eða mjög andvígir því að Ísland gangi í Evrópusambandið, en rétt rúmlega fjórðungur (27,1%) svarenda sögðust hlynntir eða mjög hlynntir því að Ísland gangi í Evrópusambandið.

1604 01 ESB 01

Spurt var: "Ert þú andvíg(ur) eða hlynnt(ur) því að Ísland gangi í Evrópusambandið (ESB)?".
Svarmöguleikar voru þeir sem sjást á myndinni auk svarmöguleikanna "Veit ekki" og "Vil ekki svara".
Samtals tóku 88,1% afstöðu til spurningarinnar.

 

Þróun yfir tíma

Litlar breytingar hafa verið á afstöðu almennings gagnvart inngöngu Íslands í ESB undanfarin tvö ár. Sé hinsvegar litið til samanburðar alveg til ársins 2012 hefur andvígum fækkað um rúmlega 10 prósentustig síðan seinnihluta ársins 2012 þegar milli 60 og 65% Íslendinga kváðust andvígir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Á sama tímabili hefur hlynntum fjölgað um allt að 10 prósentustig.

1604 01 ESB 03

Munur á afstöðu milli hópa

Þegar afstaða almennings gagnvart inngöngu Íslands í ESB er skoðuð eftir samfélagshópum kemur í ljós að fólk sem búsett er á höfuðborgarsvæðinu er mun hlynntara inngögnu Íslands í ESB heldur en fólk sem býr á landsbyggðinni. Eldri aldurshópar og konur eru einnig líklegri til að vera andvíg inngöngu í ESB heldur en karlar og þau sem yngri eru. Þau sem búa á tekjuhærri heimilum virðast einnig vera líklegri til að vera hlynnt inngöngu Íslands í ESB.
Langflest þeirra sem styðja ríkisstjórnina eru andvíg inngöngu Íslands í ESB, en meðal þeirra sem styðja ekki ríkisstjórnina eru ívið fleiri sem eru hlynnt inngöngu Íslands í ESB. Þá er stuðningsfólk Framsóknar og Sjálfstæðismanna mun líklegra til að vera andvígt inngöngu Íslands í ESB, en flestir stuðningsmanna Samfylkingarinnar eru hlynntir inngöngu í ESB. Meðal stuðningsmanna Pírata er meirihluti hlynntur inngöngu Íslands í ESB, en jafnari dreifing er á afstöðu stuðningsmanna Vinstri-grænna og Bjartrar framtíðar.

1604 01 ESB 02

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 947 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 6. til 9. maí 2016

Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.

Þróun milli mælinga:

Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.