MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina dagana 22. til 26. apríl. Niðurstöðurnar sýna minnkun á fylgi Pírata um 6,8 prósentustig síðan í síðustu mælingu sem gerð var dagana 4. til 5. apríl. Á móti jókst fylgi Sjálfstæðisflokksins um 2,9 prósentustig og fylgi Framsóknar um 2,8 prósentustig. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 32,9% sem er um 7 prósentustigum meira en í síðustu mælingu.
Píratar fengu mest fylgi samkvæmt könnuninni (29,9%) og Sjálfstæðisflokkurinn þar á eftir með 25,4%. Vinstri-grænir mældust með 14,5% fylgi, sem er um 5 prósentustiga aukning síðan um miðjan marsmánuð. Fylgi Samfylkingarinnar mældist 10,1%, fylgi Framsóknar 11,5% og fylgi Bjartrar framtíðar 3,6%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 84,0% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,7%), myndu skila auðu (5,0%), myndu ekki kjósa (1,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,3%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Ath. í upprunalegri mynd vantaði að gera ráð fyrir áhrifum þriðju spurningarinnar á fylgismat. Fylgistölur sem og svarhlutföll hafa nú verið leiðrétt.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 32,9% en mældist 26,0% í síðustu mælingu (4. til 5. apríl) og 32,4% í könnuninni þar áður (sem lauk 18. mars síðastliðinn).
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 79,5% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 953 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 22. apríl til 26. apríl 2016