MMR hefur með reglulegu millibili kannað ánægju Íslendinga með störf forseta. Í síðustu könnun sem framkvæmd var dagana 6. - 9. maí kom í ljós að almennt ríkir ánægja með störf forseta, en 59,3% þátttakenda kváðust vera ánægð með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, en 19,8% kváðust vera óánægð.
Í síðustu könnun sem lauk 26. apríl sögðust 63,7% vera ánægð með störf forsetans, en 17,0% óánægð.
Spurt var: „Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með störf Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta Íslands?“ Svarmöguleikar voru: Mjög ánægð(ur), ánægð(ur), hvorki ánægð(ur) né óánægð(ur), óánægð(ur), mjög óánægð(ur) og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 98,7% afstöðu til spurningarinnar.
Ánægja með störf Ólafs Ragnars sem forseta reyndist mismunandi eftir stuðningi við stjórnmálaflokka, en þau sem studdu ríkisstjórnarflokkana mældust mun ánægðari með störf forseta en þeir þau sem studdu aðra stjórmálaflokka.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 947 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 6.-9. maí 2016