Forseti Íslands

|

MMR hefur með reglulegu millibili kannað ánægju Íslendinga með störf forseta. Í síðustu könnun sem framkvæmd var dagana 4. - 5. apríl kom í ljós að ánægja með störf forseta hefur sjaldan verið meiri, en 60,7% þátttakenda kváðust vera ánægð með störf Ólafs Ragnars Grímssonar.

Í könnuninni sögðust 15,0% þeirra sem tóku afstöðu vera óánægð með störf forsetans, en 60,7% sögðust vera ánægð með störf forsetans. sem er aukning sem nemur um 13 prósentustigum síðan þann 18. desember.

1604 President mynd01Spurt var: „Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með störf Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta Íslands?“ Svarmöguleikar voru: Mjög ánægð(ur), ánægð(ur), hvorki ánægð(ur) né óánægð(ur), óánægð(ur), mjög óánægð(ur) og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 98,0% afstöðu til spurningarinnar.

Ánægja með störf Ólafs Ragnars sem forseta er afar mismunandi eftir stuðningi við stjórnmálaflokka, en 99% þeirra sem sögðust myndu kjósa Framsókn ef kosið væri í dag voru ánægð eða mjög ánægð með störf forseta borið saman við 27% þeirra sem sögðust myndu kjósa Samfylkinguna. Einnig má benda á að þau sem hafa lokið háskólanámi eru ólíklegri til að vera ánægð með störf forseta.

1604 President mynd02

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 987 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 4.-5. apríl 2016