Alþingiskosningar

|

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina 4. til 5. apríl 2016. Niðurstöðurnar sýna minnkun á fylgi Framsóknar um tæp fjögur prósentustig milli mælinga og mælist flokkurinn nú með minna fylgi heldur en Samfylkingin og Vinstri-grænir. Vinstri-grænir bæta við sig fylgi sem nemur 3,5 prósentustigum frá síðustu könnun. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 26,0%, sem er 6,4 prósentustigum minna en í síðustu mælingu sem fram fór um miðjan marsmánuð. Stuðningur við ríkissjórnina hefur ekki mælst lægri á þessu kjörtímabili.

Píratar mælast enn með langmest fylgi (36,7% fylgi). Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 22,5%, sem er óveruleg breyting frá síðustu mælingu. Fylgi Framsóknar er nú 8,7%, sem samsvarar lækkun um nær 4 prósentustig milli mælinga. Framsókn mælist nú með næst minnsta fylgi þeirrra flokka sem nú hafa þingmenn á Alþingi. Samkvæmt mælingum hefur fylgi Vinstri-grænna aukist um 3,5 prósentustig síðan 18. mars og fylgi Bjartrar framtíðar hefur á sama tíma aukist um 2,4 prósentustig og mælist nú 5,8%.


1604 fylgi01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,3%), myndu skila auðu (7,1%), myndu ekki kjósa (2,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,1%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

 

Þróun yfir tíma

1604 fylgi02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 26,0% en mældist 32,4% í síðustu mælingu (18. mars) og 32,7% í könnuninni þar áður (sem lauk 1. mars síðastliðinn).

1604 fylgi13 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 79,5% afstöðu til spurningarinnar. 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 987 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 4. apríl til 5. apríl 2016