Alþingiskosningar

|

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 23. febrúar til 1. mars 2016. Samkvæmt könnuninni þá mælist fylgi Pírata nú 37% sem er minnkun um 1,6 prósentustig frá síðustu könnun (sem lauk þann 10. febrúar síðastliðinn). Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna mælist nú 36,2% og þokast heldur upp á við frá síðustu könnun. Breytingar á fylgi flokka voru í öllum tilfellum innan vikmarka frá síðustu könnun.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,4% borið saman við 21,6% í síðustu könnun (10. febrúar) og 21,1% í könnuninni þar áður (1. febrúar). Fylgi Framsóknarflokksins mældist 12,8% borið saman við 10,8% í síðustu könnun og 12,2% í könnuninni þar áður. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 7,8% borið saman við 10,2% í síðustu könnun og 11,0% þar áður. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 7,8% borið saman við 9,5% í síðustu könnun og 9,4% þar áður. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist 4,2% borið saman við 3,7% í síðustu könnun og 4,4% þar áður. Fylgi annarra flokka mældist um og undir 1%.


1602 fylgi mynd01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 77,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,6%), myndu skila auðu (8,0%), myndu ekki kjósa (2,6%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,8%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Ath. í upprunalegri birtingu fréttarinnar var villa í tölum um svarhlutfall í myndatexta. Þetta hefur nú verið leiðrétt.

 

Þróun yfir tíma

1602 fylgi mynd02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 32,7% en mældist % í síðustu mælingu (sem lauk þann 20. janúar síðastliðinn) og 31,9% í könnuninni þar áður (lauk 10. febrúar síðastliðinn).

1602 fylgi mynd03 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 82,6% afstöðu til spurningarinnar. 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 926 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 23. febrúar til 1. mars 2016