Alþingiskosningar

|

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 27. janúar til 1. febrúar 2016. Samkvæmt könnuninni þá mælist fylgi Pírata nú 35,6% sem er minnkun um 2,2 prósentustig frá síðustu könnun (sem lauk þann 20. janúar síðastliðinn). Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna mælist nú 33,3% og þokast heldur upp á við frá síðustu könnun. Breytingar á fylgi flokka voru í öllum tilfellum innan vikmarka frá síðustu könnun.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,1% borið saman við 19,5% í síðustu könnun (20. janúar) og 20,6% í könnuninni þar áður (18. desember). Fylgi Framsóknarflokksins mældist 12,2% borið saman við 10% í síðustu könnun og 11,5% í könnuninni þar áður. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 11% borið saman við 12,5% í síðustu könnun og 11,4% þar áður. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 9,4% borið saman við 10,4% í síðustu könnun og 12,9% þar áður. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist 4,4% nú sem er hið sama og í síðustu könnun en 5,3% þar áður. Fylgi annarra flokka mældist um og undir 1%.


1601 2 fylgi 01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,9%), myndu skila auðu (5,6%), myndu ekki kjósa (2,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,3%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

 

Þróun yfir tíma

1601 2 fylgi 02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 33,2% en mældist 30,1% í síðustu mælingu (sem lauk þann 20. janúar síðastliðinn) og 31,2% í könnuninni þar áður (lauk 18. desember síðastliðinn).

1601 2 fylgi 03 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 82,6% afstöðu til spurningarinnar. 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 984 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 27. janúar til 1. febrúar 2016