MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 12. til 20. janúar 2016. Samkvæmt könnuninni þá jókst fylgi Pírata um 2,6 prósentustig frá meðaltali kannana MMR í desember síðastliðnum og mældist nú 37,8%. Fylgi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur farið minnkandi síðustu tvær kannanir á sama tíma og fylgi Samfylkingar og Bjartrar framtíðar hefur verið sveiflukennt og fylgi Vinstri grænna hefur þokast upp á við. Breytingar á fylgi flokka voru í öllum tilfellum innan vikmarka frá síðustu könnun.
Þannig mældist fylgi Sjálfstæðisflokksins 19,5% borið saman við 20,6% í síðustu könnun (18. desember) og 22,9% í könnuninni þar áður (7. desember). Fylgi Framsóknarflokksins mældist 10,0% borið saman við 11,5% í síðustu könnun og 12,9% í könnuninni þar áður. Fylgi Vinstri-Grænna mældist nú 12,5% borið saman við 11,4% í síðustu könnun og 9,4% þar áður. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,4% borið saman við 12,9% í síðustu könnun og 9,4% þar áður. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist 4,4% nú en 5,3% í síðustu könnun og 4,6% þar áður. Fylgi annarra flokka mældist um og undir 1%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (8,4%), myndu skila auðu (4,2%), myndu ekki kjósa (0,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,3%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 30,1% en mældist 31,2% í síðustu mælingu (sem lauk þann 18. desember s.l.) og 35,6% í könnuninni þar áður (lauk 7. desember s.l.).
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 82,6% afstöðu til spurningarinnar.
Fylgi flokka eftir hópum
Karlar voru líklegri en konur til að styðja Pírata en konur voru hinsvegar líklegri en karlar til að styðja Vinstri-græna og Bjarta framtíð. Þannig sögðust 44% karla styðja Pírata, borið saman við 29% kvenna. 18% kvenna sögðust styðja Vinstri-græn, borið saman við 8% karla og 7% kvenna sögðust styðja Bjarta framtíð, borið saman við 2% karla.
Yngra fólk var líklegra til að styðja Pírata en eldra fólk, hinsvegar var eldra fólk líklegra til að styðja Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna en yngra fólk.
Píratar laða til sín fylgi frá öllum flokkum frá síðustu kosningum. Þannig sögðust 60% þeirra sem kusu Bjarta framtíð í síðustu kosningum nú styðja Pírata, 30% þeirra sem kusu Samfylkinguna styðja nú Pírata, 26% þeirra sem kusu Framsóknarflokkin styðja nú Pírata, 19% þeirra sem kusu Vinstri-græn styðja nú Pírata og 10% þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn styðja Pírata í dag.
Myndin sýnir hlutfallslega skiptingu á fylgi flokka eftir ólíkum hópum. Samtals voru 80,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (8,4%), myndu skila auðu (4,2%), myndu ekki kjósa (0,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,3%). Hlutfall þeirra sem tóku afstöðu til flokka getur verið ólíkt á milli hópa.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 922 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 12. til 20. janúar 2016