Alþingiskosningar

|

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 1. til 7. desember 2015. Píratar mælast nú með 35,5% fylgi og þar með stærsti stjórnmálaflokkurinn á Íslandi níunda mánuðinn í röð. Fylgi Framsóknarflokksins þokast heldur upp á við og mælist nú 12,9% (ath. í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var ranglega sagt að mælt fylgi Framsóknarflokksins væri marktæk aukning frá í október - sem hún er ekki).

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 22,9% borið saman við 23,7% í síðustu könnun þann 4. nóvember 2015. Fylgi Framsóknarflokksins mældist 12,9% borið saman við 10,8% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-Grænna mældist nú 9,4% borið saman við 9,9% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 9,4% borið saman við 10,5% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú og í síðustu könnun 4,6%. Fylgi Dögunnar mældist 1,1% borið saman við 0,7% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 1%.


1511 fylgi01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,7% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,2%), myndu skila auðu (4,9%), myndu ekki kjósa (2,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (7,2%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

 

Þróun yfir tíma

1511 fylgi02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 35,6% en mældist 33,1% í síðustu mælingu (sem lauk þann 4. nóvember s.l.) og 31,4% í lok september síðastliðinn (lauk 16. október s.l.).

1511 fylgi03 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 83,8% afstöðu til spurningarinnar. 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 967 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 1. til 7. desember 2015