MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 26. október til 4. nóvember 2015. Píratar mælast nú með 35,3% fylgi sem er innan vikmarka frá síðustu tveimur könnunum (frá 16. október og 24. september 2015).
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 23,7% borið saman við 21,7% í síðustu könnun þann 16.október 2015. Fylgi Framsóknarflokksins mældist 10,8% borið saman við 10,4% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,5% borið saman við 11,3% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-Grænna mældist nú 9,9% borið saman við 11,8% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist 4,6% borið saman við 6,5% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 1%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,9%), myndu skila auðu (6,7%), myndu ekki kjósa (2,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,7%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 33,1% en mældist 31,4% í síðustu mælingu (sem lauk þann 16. október s.l.) og 35,5% í lok september síðastliðinn (lauk 24. september s.l.).
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 83,6% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 961 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 26. október til 4. nóvember 2015