MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 8. til 16. október 2015. Píratar mælast nú með 34,2% fylgi sem er inann vikmarka frá síðustu tveimur könnunum (fá 3. og 24. september 2015).
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,7% borið saman við 25,3% í síðustu könnun þann 24.september 2015. Fylgi Vinstri-Grænna mældist nú 11,8% borið saman við 8,3% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 11,3% borið saman við 11,8% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,4% borið saman við 10,3% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 6,5%, borið saman við 5,9% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 1%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,1% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,4%), myndu skila auðu (6,0%), myndu ekki kjósa (2,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 31,4% en mældist 35,5% í síðustu mælingu (sem lauk þann 24.september s.l.) og 34,4% í byrjun september s.l. (lauk 3. september s.l.).
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 83,6% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 934 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 8. til .16 október 2015
Þróun milli mælinga:
Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.