MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 31. ágúst til 3. september 2015. Píratar mælast nú með 33,0% fylgi sem er tveimur prósentustigum minna en í síðustu könnun (sem lauk 30.7.2015).
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,3%, borið saman við 23,1% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,4%, borið saman við 12,2% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,6% borið saman við 9,6% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-Grænna mældist nú 9,6%, borið saman við 10,2% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 5,8%, borið saman við 4,4% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 1%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 82,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,2%), myndu skila auðu (5,1%), myndu ekki kjósa (1,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,9%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 34,4% en mældist 33,2% í síðustu mælingu (sem lauk þann 30. júlí s.l.) og 33,2% í júní s.l. (lauk 30. júní).
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 83,3% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1023 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 31. ágúst til 3. september 2015
Þróun milli mælinga:
Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.