MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 24. til 30. júní 2015. Fylgi Pírata mældist nú 33,2%, borið saman við 32,4% í síðustu könnun (sem lauk 24. júní s.l.) og mælast með mest fylgi allra flokka á Íslandi.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,8%, borið saman við 23,3% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 12,0%, borið saman við 10,5% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,6%, borið saman við 10,0% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 9,3% borið saman við 11,6% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 5,6%, borið saman við 6,8% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,0% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,6%), myndu skila auðu (6,5%), myndu ekki kjósa (2,6%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,3%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 30,4% en mældist 31,9% í síðustu mælingu (sem lauk þann 24. júní s.l.) og 29,4% í maí s.l. (lauk 2. júní).
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 84,8% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 981 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 24. til 30. júní 2015
Þróun milli mælinga:
Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.