Alþingiskosningar

|

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 16. til 21. apríl 2015. Píratar hafa bætt við sig fylgi frá því í síðustu könnun (sem lauk 8. apríl s.l.) og mælast með mest fylgi allra flokka á Íslandi.

Fylgi Pírata mældist nú 32,0%, borið saman við 27,4% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,9%, borið saman við 22,9% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,8%, borið saman við 13,1% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 10,8%, borið saman við 9,8% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,7%, borið saman við 11,4% í síðustu könnun og fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 8,3%, borið saman við 10,3% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%. 


1504 fylgi 01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 77,1% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,4%), myndu skila auðu (7,0%), myndu ekki kjósa (3,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,7%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

 

Þróun yfir tíma

1504 fylgi 02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 30,7% en mældist 35,3% í síðustu mælingu (sem lauk þann 8. apríl s.l.) og 33,4% í mars s.l. (lauk 18. mars).

 

1504 support 01 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 83,6% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1001 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 16. til 21. apríl 2015

Þróun milli mælinga:

Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.