MMR kannaði álit almennings til persónueiginleika nokkurra stjórnmálaleiðtoga. Í könnuninni voru svarendur beðnir um að meta hvort nokkur persónueinkenni ættu við stjórnmálaleiðtogana eða ekki. Ef skoðuð eru svör þeirra sem tóku afstöðu má sjá að flestir töldu Katrínu Jakobsdóttur vera gædda þeim eiginleikum sem spurt var um. Meðal annars töldu 48% Katrínu standa við eigin sannfæringu, 47% töldu Katrínu vera heiðarlega og 36% töldu hana gædda persónutöfrum.
Ólafur Ragnar var einnig talinn gæddur nokkrum af þeim eiginleikum sem spurt var um. 37% töldu Ólaf Ragnar vera ákveðinn, 33% töldu Ólaf Ragnar vera sterkan og 30% töldu hann vera fæddan leiðtoga.
40% töldu Birgittu Jónsdóttur standa við eigin sannfæringu og 32% töldu hana vera í tengslum við almenning.
34% töldu Dag B. Eggertsson vera gæddan persónutöfrum.
Fáir tengdu leiðtoga ríkisstjórnarflokkanna við neðangreinda eiginleika. Þannig töldu 50% þeirra sem tóku afstöðu enga neðangreindra eiginleika eiga við um Sigmund Davíð Gunnlaugsson og 40% töldu enga neðangreindra eiginleika eiga við um Bjarna Benediktsson. Aðeins 9% töldu Sigmund Davíð vera heiðarlegan, 8% töldu Bjarna Benediktsson standa vörð um hagsmuni almennings, 5% töldu Sigmund Davíð vera gæddan persónutöfrum og 5% töldu Sigmund Davíð og Bjarna Benediktsson vera í tengslum við almenning.
Spurt var: „Ef þú hugsar um eftirtalda einstaklinga. Hvaða kostum, af eftirfarandi, finnst þér hver þeirra búa yfir?
- merktu við alla þá kosti sem þér finnst að eigi við um hvern og einn einstakling?"
Einstaklingarnir og kostirnir sem spurt var um voru eins og að ofan greinir.
Samtals tóku 80,7% afstöðu til spurningarinnar (að hluta til eða í heild).
*ekki eru til mælingar á öllum aðilunum í öll skipti
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1060 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 30. mars til 8. apríl 2015
Eldri kannanir sama efnis:
Mars 2014: MMR könnun: Persónueinkenni stjórnmálaleiðtoga
Mars 2011: MMR könnun: Persónueinkenni stjórnmálaleiðtoga
Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.
Þróun milli mælinga:
Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.