Alþingiskosningar

|

kosningar-logoMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 13. til 18. mars 2015. Píratar hafa bætt við sig miklu fylgi frá því í síðustu könnun (sem lauk 19. febrúar s.l.) og mælast nú með mest fylgi allra flokka á Íslandi (munur á fylgi Pírata og Sjálfstæðisflokksins er þó innan tölfræðilegra vikmarka).

Fylgi Pírata mældist nú 23,9%, borið saman við 12,8% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,4%, borið saman við 25,5% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,5%, borið saman við 14,5% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,0%, borið saman við 13,1% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 10,8%, borið saman við 12,9% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 10,3%, borið saman við 15,0% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%. 


1503 fylgi 01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 78,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,2%), myndu skila auðu (6,9%), myndu ekki kjósa (2,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu könnun þar á undan.

 

Þróun yfir tíma

1503 fylgi 02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 33,4% en mældist 36,4% í síðustu mælingu (sem lauk þann 19. febrúar s.l.) og 34,1% í janúar s.l. (lauk 29. janúar).

 

1503 support 01 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 84,9% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 969 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 13. til 18. mars 2015

Þróun milli mælinga:

Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.