althingiMMR kannaði viðhorf Íslendinga til þess að ríkið seldi eignarhlut sinn í Landsbankanum, Landsvirkjun og Ríkisútvarpinu. Meirihluti var andvígur því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn í fyrirtækjunum þremur.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 41,5% fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn í Landsbankanum nú, borið saman við 45,6% í janúar 2012. 28,9% sögðust fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn í Ríkisútvarpinu nú, borið saman við 22,8% í janúar 2013. Aðeins voru 13,2% fylgjandi því að ríkið myndi selja eignarhlut sinn í Landsvirkjun nú, borið saman við 19,6% í janúar 2012.

 1502 Sala rikisfyrirtaekja 1bSpurt var: „Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) því að ríkið selji eignahlut sinn í eftirfarandi fyrirtækjum? – Landsbankinn/Landsvirkjun/Ríkisútvarpinu“
Svarmöguleikar voru: „Mjög andvíg(ur)“, „Frekar andvíg(ur)“, „Frekar fylgjandi“ og „Mjög fylgjandi“.
Samtals tóku 77,9% afstöðu til Landsbankans, 80,2% til Landsvirkjunar og 81,3% til Ríkisútvarpsins.

 

Þeir sem styðja ríkisstjórnina hlynntari því að einkavæða Ríkisútvarpið.

Þrátt fyrir að meirihluti væri andvígur einkavæðingu ríkisfyrirtækja var viðhorf breytilegt á milli hópa. Ber þar helst að nefna að hlutfallslega fleiri þeirra sem styðja ríkisstjórnina sögðust vilja einkavæða Ríkisútvarpið en þeirra sem ekki styðja ríkisstjórnina. Af þeim sem tóku afstöðu og styðja ríkisstjórnina sögðust 45,2% vera fylgjandi því að einkavæða Ríkisútvarpið, borið saman við 19,6% þeirra sem ekki styðja ríkisstjórnina.

Þegar viðhorf er skoðað eftir stuðningi við flokka vildu hlutfallslega flestir þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn einkavæða fyrirtækin þrjú. Af þeim sem tóku afstöðu og styðja Sjálfstæðisflokkinn sögðust 59,2% fylgjandi því að ríkið selji eignarhlut sinn Landsbankanum, borið saman við 18,3% Vinstri-grænna, 50,9% voru fylgjandi því að ríkið selji eignarhlut sinn í Ríkisútvarpinu, borið saman við 11,7% Vinstri-grænna og 20,3% voru fylgjandi því að ríkið selji eignarhlut sinn í Landsvirkjun, borið saman við 4,1% þeirra sem styðja Framsóknarflokkinn.

 

1502 Sala rikisfyrirtaekja 2a

 

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18 ára og eldri ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 975 einstaklingar á aldrinum 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 13.-19. febrúar 2015

Eldri kannanir sama efnis:
2013 janúar: MMR könnun: Viðhorf Íslendinga til þess að ríkið selji eignarhlut sinn í Landsbankanum, Landsvirkjun og Ríkisútvarpinu

Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.

Þróun milli mælinga:

Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.