MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 13. til 19. febrúar 2015. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 36,4% en mældist 34,1% í síðustu mælingu (sem lauk þann 29. janúar s.l.) og 34,8% um miðjan janúar s.l. (lauk 14. janúar).
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,5%, borið saman við 24,9% í síðustu könnun (lauk 29. janúar s.l.). Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 15,0%, borið saman við 16,8% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 14,5%, borið saman við 14,7% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældis nú 13,1%, borið saman við 12,7% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 12,9%, borið saman við 12,0% í síðustu könnun of fylgi Pírata mældist nú 12,8%, borið saman við 14,0% í siðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 77,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,3%), myndu skila auðu (6,4%), myndu ekki kjósa (3,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,1%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu könnun þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 82,2% afstöðu til spurningarinnar.
Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 975 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 13. til 19. febrúar 2015
Þróun milli mælinga:
Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.