Stjórnmál

|

peningar logo 2MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða sex málaflokka tengda efnahagsmálum sem stjórnvöld þurfa eða gætu þurft að fást við á næstu mánuðum.
Þeir málaflokkar sem um ræðir eru skuldamál heimilanna, endurreisn atvinnulífsins, efnahagsmál almennt, skattamál, atvinnuleysi og málefni Íbúðarlánasjóðs.

Flestir töldu Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða alla málaflokka tengda efnahagsmálum. Af þeim sem tóku afstöðu töldu 41,4% Sjáflstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða endurreisn atvinnulífsins, 40,9% töldu Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í efnahagsmálum almennt, 38,7% töldu hann bestan til að leiða í  skattamálum og 31,9% töldu Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í málefnum Íbúðarlánasjóðs og 31,5% töldu hann bestan til þess fallinn að leiða í málefnum atvinnuleysis.
Af þeim sem tóku afstöðu töldu 25,8% Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða skuldamál heimilanna, borið saman við 19,0% sem töldu Framsóknarflokkinn vera bestan til þess fallinn.

1501 efnahagsmal 01

Spurt var: Eftirfarandi eru nokkrir málaflokkar sem stjórnvöld þurfa eða gætu þurft að fást við á næstu mánuðum. Hvaða stjórnmálaflokkur, af eftirfarandi, telur þú að væri best til þess fallinn að leiða hvern málaflokk?
Svarmöguleikar voru: Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstri græn, Björt framtíð, Píratar.
Samtals tóku 58,3% afstöðu til spurningarinnar (að hluta til eða í heild).
** Á myndinni er til samanburðar sýnd mæling á fylgi flokka úr sömu könnun.
* 5,9% af fylgi stjórnmálaflokka dreifist á aðra flokka þá sem eiga fulltrúa á þingi.
 

Þróun yfir tíma - endurreisn atvinnulífsins
Þó að flestir telji Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í endurreisn atvinnulífsins hefur þeim fækkað nokkuð sem eru á þeirri skoðun frá því í desember 2012. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 41,4% Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn, borið saman við 52,6% í desember 2012.

 

1501 EndurreisnAtvinnu 01Sundurliðun eftir stuðningi við stjórnmálaflokka - endurreisn atvinnulífsins
27,3% þeirra sem sögðust styðja Vinstri-græn töldu Samfylkinguna besta til þess fallna að leiða endurreisn atvinnulífsins.


1501 EndurreisnAtvinnu 02 

 

Þróun yfir tíma - efnahagsmál almennt
Færri töldu Framsóknarflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í efnahagsmálum almennt nú en í fyrra. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 8,4% Framsóknarflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn, borið saman við 14,9% í janúar 2013.

1501 Efnahagsmalalmennt 01

Sundurliðun eftir stuðningi við stjórnmálaflokka - efnahagsmál almennt
Af þeim sem sögðust styðja Vinstri-græn töldu 28,8% Samfylkinguna besta til þess fallna að leiða í efnahagsmálum almennt.
Af þeim sem sögðust styðja Framsóknarflokkinn töldu 20,4% Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í efnahagsmálum almennt.

1501 Efnahagsmalalmennt 02

 

Þróun yfir tíma - skattamál
Þó að flestir telji Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í skattamálum hefur þeim fækkað sem eru á þeirri skoðun frá því í desember 2012. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 38,7% Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn, borið saman við 50,2% í desember 2012.
Á sama tíma fjölgar þeim sem töldu að Samfylkingin væri best til þess fallin að leiða í Skattamálum. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 22,0% að Samfylkingin væri best til þess fallin að leiða í skattamálum, borið saman við 16,9% 2012.

1501 skattamal 01

Sundurliðun eftir stuðningi við stjórnmálaflokka - skattamál
23,9% þeirra sem sögðust styðja Framsóknarflokkinn töldu Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í skattamálum og 19,0% þeirra sem studdu Bjarta framtíð töldu Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn.

1501 skattamal 02

Þróun yfir tíma - skuldamál heimilanna
Hlutfall þeirra sem töldu Framsóknarflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn skuldamál heimilanna hefur dregist saman á meðan hlutfall þeirra sem töldu Sjálfsstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn hefur aukist frá því í fyrra. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 19,0% Framsóknarflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn, borið saman við 34,4% í janúar 2014. Til samanburðar töldu 25,8% Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn nú, borið saman við 21,2% í fyrra.

1501 Skuldamal 01
Sundurliðun eftir stuðningi við stjórnmálaflokka - skuldamál heimilanna
16,8% þeirra sem sögðust styðja Sjálfstæðisflokkinn töldu Framsóknarflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í skuldamálum heimilanna.

1501 Skuldamal 02

 

Þróun yfir tíma - málefni Íbúðarlánasjóðs
Þeim fækkar nokkuð sem töldu Framsóknarflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málefni Íbúðarlánasjóðs. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 12,1% að Framsóknarflokkurinn væri bestur til þess fallinn að leiða málefni Íbúðarlánasjóðs, borið saman við 19,4% í janúar 2014.

1501 ILS 01

Sundurliðun eftir stuðningi við stjórnmálaflokka - málefni Íbúðarlánasjóðs
Af þeim sem studdu Bjarta framtíð töldu 27,4% að Samfylkingin væri best til þess fallin að leiða í málefni Íbúðarlánasjóðs og 23,1% þeirra sem studdu Vinstri-græn töldu Samfylkinguna besta til þess fallna að leiða málaflokkinn.

1501 ILS 02

 

Þróun yfir tíma - atvinnuleysi
Hlutfall þeirra sem töldu Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallina að leiða málaflokkinn atvinnuleysi hefur lækkað nokkuð frá desember 2012. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 31,5% Sjáflstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn, borið saman við 49,4% í desember 2012.
Hlutfall þeirra sem töldu Framsóknarflokkinn bestan til þess fallina að leiða málaflokkinn atvinnuleysi hefur lækkað nokkuð frá janúar 2014. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 10,1%  Framóknarflokkinn bestan til þess fallinn leiða málaflokkinn, borið saman við 16,2% í janúar 2014.

1501 atvinnuleysi 01

 Sundurliðun eftir stuðningi við stjórnmálaflokka - atvinnuleysi

1501 atvinnuleysi 02

 

Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára  og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 933 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 9.-14. janúar 2015

Eldri kannanir sama efnis:
2015 janúar: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka [2/3]
2015 janúar: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka [1/3]
2014 janúar: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka [3/3]
2014 janúar: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka [2/3]
2014 janúar: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka [1/3]
2012 desember: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka
2011 desember: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka
2010 desember: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka
2009 apríl: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka

Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.