MMR kannaði afstöðu fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða fimm málaflokka tengda grunnstoðum samfélagsins sem stjórnvöld þurfa eða gætu þurft að fást við á næstu mánuðum.
Af málaflokkunum fimm voru ríkisstjórnarflokkarnir tveir (Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur) ekki taldir bestir til þess fallnir að leiða neinn málaflokk af meira en helming þátttakenda samanlagt.
Þeir málaflokkar sem um ræðir eru lög og regla almennt, heilbrigðismál, mennta- og skólamál, nýting náttúruauðlinda (s.s. fiskveiðar, vatn og orka) og umhverfismál.
Af þeim sem tóku afstöðu töldu 38,6% Sjálfstæðisflokkurinn vera bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn lög og regla almennt og 7,8% töldu Framsóknarflokkurinn vera bestan til þess fallinn.
Þriðjungur taldi annan hvorn ríkisstjórnarflokkanna bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn umhverfismál. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 19,8% Sjálfstæðisflokkinn vera bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn og 12,1% töldu Framsóknarflokkinn vera bestan til þess fallinn. Til samanburðar töldu 38,8% Vinstri-græn vera best til þess fallin að leiða málaflokkinn.
Spurt var: Eftirfarandi eru nokkrir málaflokkar sem stjórnvöld þurfa eða gætu þurft að fást við á næstu mánuðum. Hvaða stjórnmálaflokkur, af eftirfarandi, telur þú að væri best til þess fallinn að leiða hvern málaflokk?
Svarmöguleikar voru: Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstri græn, Björt framtíð, Píratar.
Samtals tóku 58,3% afstöðu til spurningarinnar (að hluta til eða í heild).
** Á myndinni er til samanburðar sýnd mæling á fylgi flokkanna úr sömu könnun.
* 5,9% af fylgi stjórnmálaflokka dreifist á aðra flokka þá sem eiga fulltrúa á þingi.
Þróun yfir tíma - lög og regla
Flestir töldu Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn lög og reglu almennt líkt og síðustu ár. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 38,6% Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn borið saman við 46,6% í desember 2012.
Hlutfall þeirra sem töldu Pírata besta til þess fallina að leiða málaflokkinn hækkar nokkuð frá síðustu mælingu (janúar 2013). Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 11,9% að Píratar væri bestir til þess fallnir að leiða málaflokkinn, borið saman við 7,8% í fyrra.
Sundurliðun eftir stuðningi við stjórnmálaflokka - lög og regla
28,0% þeirra sem sögðust styðja Framsóknarflokkinn töldu að Sjálfstæðisflokkurinn væri bestan til þess fallinn að leiða lög og reglu almennt.
Þróun yfir tíma - heilbrigðismál
Þeim hefur fækkað sem telja Framsóknarflokkinn vera bestan til þess fallin að leiða málaflokkinn heilbrigðismál frá því í fyrra.
Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 8,8% Framsóknarflokinn vera bestan til þess fallin að leiða málaflokkinn borið saman við 12,2% í janúar 2014.
Sundurliðun eftir stuðningi við stjórnmálaflokka - heilbrigðismál
22,0% þeirra sem sögðust styðja Framsóknarflokkinn töldu Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða í heilbrigðismálum.
41,9% þeirra sem sögðust styðja Pírata töldu Pírata besta til þess fallna að leiða í heilbrigðismálum en 23,3% töldu að Samfylkingin væri best til þess fallin og 16,4% töldu að Björt framtíð væri best til þess fallin.
Þróun yfir tíma - mennta- og skólamál
Þeim fækkar sem töldu Sjálfstæðisflokkinn vera bestan til þess fallin að leiða málaflokkinn mennta- og skólamál.
Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 30,3% Sjálfstæðisflokkinn vera bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn borið saman við 39,4% í desember 2012.
Sundurliðun eftir stuðningi við stjórnmálaflokka - mennta- og skólamál
19,4% þeirra sem sögðust styðja Samfylkinguna töldu Vinstri-græn best til þess fallin að leiða í mennta- og skólamálum.
Þróun yfir tíma - nýting náttúruauðlinda (s.s. fiskveiðar, vatn og orka)
Þeim sem telja Framsóknarflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn nýting náttúruauðlinda hefur fækkað nokkuð á meðan hlutfalli þeirra sem telja Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn hefir aukist frá í fyrra. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 26,5% Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn og 10,1% tölu Framsóknarflokkinn bestan til þess fallinn. Í janúar 2013 töldu 23,0% Sjálfstæðisflokkinn bestan til þess fallinn að leiða málaflokkinn og 17,5% sem töldu Framsóknarflokkinn bestan til þess fallinn.
Sundurliðun eftir stuðningi við stjórnmálaflokka - nýting náttúruauðlinda (s.s. fiskveiðar, vatn og orka)
Af þeim sem sögðust styðja Samylkingu töldu 32,1% Vinstri-græn vera best til þess fallin að leiða málaflokkinn nýting náttúruauðlinda.
Þróun yfir tíma - umhverfismál
Sem og fyrri ár töldu flestir Vinstri-græn best til þess fallinn að leiða málaflokkinn umhverfismál. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 38,8% Vinstri-græn vera best til þess fallin að leiða málaflokkinn, borið saman við 29,2% í desember 2012.
Sundurliðun eftir stuðningi við stjórnmálaflokka - umhverfismál
51,6% þeirra sem sögðust styðja Samfylkinguna og 47,6% þeirra sem sögðust styðja Bjarta framtíð og 33,4% þeirra sem sögðust styðja Pírata töldu Vinstri-græn best til þess fallin að leiða í umhverfismálum.
17,2% þeirra sem sögðust styðja Sjálfstæðisflokkinn og 12,4% þeirra sem sögðust styðja Framsóknarflokkinn töldu Vinstri-græn best til þess fallinn að leiða í umhverfismálum.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 993 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 9.-14. janúar 2015
Eldri kannanir sama efnis:
2014 janúar: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka [3/3]
2014 janúar: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka [2/3]
2014 janúar: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka [1/3]
2012 desember: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka
2011 desember: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka
2010 desember: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka
2009 apríl: MMR könnun: Afstaða fólks til þess hvaða stjórnmálaflokka það teldi best til þess fallna að leiða málaflokka
Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.