Alþingiskosningar

|

kosningar-logoMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 9. til 16. desember 2014. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 37,3% en mældist 36,4% í síðustu mælingu (sem lauk þann 25. nóvember s.l.) og 33,0% í byrjun nóvember s.l. (lauk 4. nóvember).

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 29,4%, borið saman við 25,4% í síðustu könnun (lauk 25. nóvember s.l.). Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 16,2%, borið saman við 15,5% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,1%, borið saman við 16,5% í síðustu könnun. Fylgi Pírata mældist nú 11,4%, borið saman við 10,6% í siðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældis nú 11,0%, borið saman við 11,8% í síðustu könnun og mældist fylgi Vinstri-grænna mældist nú 10,4%, borið saman við 11,2% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%. 


1412 fylgi 01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 75,2% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,9%), myndu skila auðu (8,2%), myndu ekki kjósa (3,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,3%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu könnun þar á undan.

 

Þróun yfir tíma

1412 fylgi 02b

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

 

1412 support 01 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 82,6% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1097 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 9 til 16. desember 2014