geysir logoMMR kannaði á dögunum afstöðu almennings til þess að ferðamönnum (íslenskum sem erlendum) verði gert að kaupa „náttúrupassa" til að öðlast aðgengi að helstu ferðamannastöðum á Íslandi. Þeim fækkaði nokkuð sem sögðust vera fylgjandi náttúrupassa frá því að spurningin var síðast lögð fyrir í apríl 2014. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 31,2% þeirra sem tóku afstöðu vera fylgjandi náttúrupassa, borið saman við 47,2% í apríl 2014.


1412 natturupassi 01Spurt var: „Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ert þú að ferðamönnum (íslenskum sem erlendum) verði gert að kaupa „náttúrupassa" til að öðlast aðgengi að helstu ferðamannastöðum á Íslandi?"
Skilgreining á náttúrupassa breyttist í samræmi við breytingu á hugmynd/frumvarpi um náttúrupassa.
Skilgreining í desember 2014: í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að ferðamenn 18 ára og eldri greiði 1.500 krónur fyrir passann og hann muni gilda í 3 ár.
Skilgreining í  apríl 2014: Í hugmyndinni um náttúrupassa er gert er ráð fyrir því að ferðamenn 18 ára og eldri greiði fyrir passann og rukkað verði 2.000 krónur fyrir 4 daga, 3.000 krónur fyrir mánuð og 5.000 krónur fyrir fimm ár.
Svarmöguleikar voru: Mjög andvíg(ur), frekar andvíg(ur), bæði og, frekar fylgjandi, mjög fylgjandi og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 90,4% afstöðu til spurningarinnar.


Munur á afstöðu eftir aldri, búsetu og stjórnmálaskoðunum
Þeir sem tilheyrðu elsta aldurshópnum voru líklegri til að vera hlynntir náttúrupassa en þeir sem yngri eru. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu elsta aldurshópnum (68 ára og eldri) sögðust 36,9% vera fylgjandi náttúrupassa, borið saman við 25,6% þeirra sem tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára).

Þeir sem voru búsettir á landsbyggðinni voru frekar hlynntir náttúrupassa en þeir sem búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu. Þannig sögðust 35,9% á landsbyggðinni vera fylgjandi náttúrupassa, borið saman við 28,3% þeirra sem búsett voru á höfuðborgarsvæðinu.

Nokkur munur var á afstöðu til náttúrupassa eftir stjónmálaskoðnunum. Þannig voru þeir sem studdu ríkisstjórnina frekar hlynntir náttúrupassa en þeir ekki studdu ríkisstjórnina. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu ríkisstjórnina sögðust 45,6% vera fylgjandi náttúrupassa, borið saman við 22,4% þeirra sem ekki studdu ríkisstjórnina.

1412 natturupassi 02

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára  og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1097 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 9. til 16. desember 2014

Eldri kannanir sama efnis:
2014 apríl: MMR könnun: Afstaða almennings til náttúrupassa