mobile car logoMMR kannaði á dögunum farsímanotkun Íslendinga undir stýri síðastliðna 12 mánuði. Frá maí 2010 hefur þeim fækkað sem tala í síma undir stýri en þeim sem skoða internetið undir stýri hefur fjölgað.

Þannig fækkaði þeim nokkuð sem sögðust hafa notað farsíma undir stýri fyrir símtöl án handfrjáls búnaðar. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögður 64,1% hafa talað í farsíma undir stýri án handfrjáls búnaðar, borið saman við 71,0% í maí 2010.

Aftur á móti fjölgar þeim sem sögðust hafa notað farsíma undir stýri til að fara á internetið (t.d. skoða fréttasíður eða samfélagsmiðla). Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 10,0% hafa notað farsíma undir stýri til að fara á internetið, borið saman við 3,5% í maí 2010.

Þeim fækkar einnig sem sögðust hafa notað farsíma undir stýri til að skrifa/lesa sms, tölvupóst eða önnur skilaboð. Af þeim sem tóku afstöðu nu sögðust 21,1% hafa notað farsíma undir stýri til að skrifa/lesa skilaboð, borið saman við 26,4% í maí 2010.
 

   1411 mobile 02aSpurt var: „Hefur þú notað farsíma undir stýri síðastliðna 12 mánuði?“
Svarmöguleikar voru: Já, fyrir símtöl án handfrjáls búnaðar, Já, fyrir símtöl með handfrjálsum búnaði,
Já, til að skrifa/lesa sms, tölvupóst eða önnur skilaboð, Já, til að fara á internetið (t.d. skoða fréttasíður eða samfélagsmiðla), Nei og Veit ekki/vil ekki svara.
Alls tóku 97,8% afstöðu til spurningarinnar.
 


Nokkur munur á notkun farsíma undir stýri eftir kyni, aldri og stuðningi við stjórnmálaflokka

Á heildina litið voru karlar líklegri en konur til að segjast hafa notað farsíma undir stýri síðastliðna 12 mánuði. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 85,5% karla hafa notað farsíma undir stýri, borið saman við 73,3% kvenna.

Þeir sem tilheyrðu elsta aldurshópnum (68 ára og eldri) voru mun ólíklegri en þeir sem yngri eru til að hafa notað farsíma undir stýri síðastliðna 12 mánuði. Þannig sögðust 61,3% þeirra sem tilheyrðu elsta aldurshópnum ekki hafa notað síma undir stýri, borið saman við 12,2% þeirra sem voru á aldrinum 30-49 ára.

43,2% þeirra sem tilheyrðu aldurshópnum 18-29 ára sögðust hafað notað farsíma undir stýri til að skrifa/lesa sms, tölvupóst eða önnur skilaboð síðastliðna 12 mánuði.

Þegar notkun á farsíma undir stýri er skoðuð eftir stuðningi við stjórnmálaflokka kemur í ljós að þeir sem studdu Sjálfstæðisflokkinn voru líklegastir til að segjast hafa notað farsíma undir stýri síðastliðna 12 mánuði (88,0%) en þeir sem studdu Samfylkinguna voru ólíklegastir til þess (72,5%).

1411 mobile 03

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1042 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 21. til 25. nóvember 2014

Eldri kannanir sama efnis:
2010 maí: MMR könnun: Notkun farsíma undir stýri