MMR kannaði á dögunum hversu reglulega rúmföt Íslendinga væru þvegin. Svo virðist vera að meirihluti Íslendinga styðjist við þá þumalputtareglu að rúmföt skuli þvegin á tveggja vikna fresti eða oftar. Þannig sögðu 65,4% að rúmfötin væru þvegin á tveggja vikna fresti eða oftar. 19,3% Íslendinga sögðu að rúmötin væru þvegin vikulega eða oftar og 34,6% sögðu að rúmfötin væru þvegin á þriggja vikna fresti eða sjaldnar.
Þegar niðurstöðurnar eru bornar saman við niðurstöður samskonar könnunar YouGov í Bretlandi kom í ljós rúmföt Breta eru að jafnaði þvegin oftar en Íslendinga. Þannig sögðust 76,3% Breta þvo rúmfötin sín á tveggja vikna fresti eða oftar, 38,7% sögðu að rúmfötin væru þvegin vikulega eða oftar og 23,7% sögðu að rúmfötin væru þvegin á þriggja vikna fresti eða sjaldnar.
Ekki liggur fyrir að svo stöddu af hverju þessu munur stafar. Hugsast getur að ástæðan liggi í því að vatn á Íslandi er sérstaklega mjúkt (lágur styrkur kalsíns og magnesíns) og þvoi því sérstaklega vel. Einnig er hugsanlegt að Íslendingar séu sérstaklega ötulir við að sturta sig. Það eitt er víst að hér er um verðugt rannsóknarverkefni til framtíðar að ræða.
Spurt var: „Að jafnaði, hversu oft eru rúmfötin þín þvegin?"
Svarmöguleikar voru: Oftar en vikulega, vikulega, 2 vikna fresti, 3 vikna fresti, 4 vikna fresti, 5 vikna fresti, 6 vikna fresti, 7 vikna fresti eða sjaldnar og Veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 89,4% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1436 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 20. til 25. september 2014