lodirMMR kannaði á dögunum viðhorf Íslendinga til lóðaúthlutunar til trúfélaga.
Flestir sögðust andvígir því að trúfélög fái úthlutað ókeypis lóðum til að byggja trúarbyggingar hjá sveitafélögum. Þeim sem sögðust vera mjög andvígir fjölgar frá síðustu mælingu.

Þannig sögðust 51,8% þeirra sem tóku afstöðu nú vera mjög andvígir, borið saman við 45,5% í september 2013.
Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 8,1% vera frekar- eða mjög fylgjandi, borið saman við 10,0% í september 2013.

  1409 trufelog lodir 01Spurt var: „Almennt séð, hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ertu því að trúfélög fái úthlutað ókeypis lóðum til að byggja trúarbyggingar hjá sveitafélögunum?“
Svarmöguleikar voru: Mjög andvíg(ur), Frekar andvíg(ur), Hvorki né, Frekar fylgjandi, Mjög fylgjandi og Veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 92,5% afstöðu til spurningarinnar.

  

Nokkur munur var á afstöðu eftir stuðningi við stjórnmálaflokka.
Þeir sem sögðust styðja Samfylkinguna voru í nokkrum sérflokki hvað varðar afstöðu til úthlutun ókeypis lóða til trúfélaga. Af þeim sem tóku afstöðu og sögðust styðja Samfylkinguna sögðust 21,0% vera fylgjandi því að trúfélög fái úthlutað ókeypis lóðum til að byggja trúarbyggingar hjá sveitafélögum. Til samanburðar sögðust 4,1% Framsóknarfólks vera fylgjandi því að trúfélögum sé úthlutað ókeypis lóðum hjá sveitafélögum.

 1409 trufelog lodir 02

 

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1436 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 20. til 25. september 2014

Eldri kannanir sama efnis:
2013 September: MMR könnun: Viðhorf Íslendinga til úthlutunar ókeypis lóða til trúfélaga