MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 28. til 31. júlí 2014.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 24,1%, borið saman við 25,0% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 19,2%, borið saman við 21,8% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 17,0% borið saman við 16,5% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,8%, borið saman við 9,5% í siðustu könnun. Vinstri-græn mældust nú með 11,6% fylgi, borið saman við 11,4% í síðustu könnun og fylgi Pírata mældist nú 9,6%, borið saman við 8,3% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 36,2% en mældist 38,0% í síðustu mælingu (sem lauk þann 23. júní s.l.) og 36,8,8% í lok maí s.l. (lauk 23. maí).
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 80,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,3%), myndu skila auðu (5,7%), myndu ekki kjósa (2,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu könnun þar á undan.
Þróun yfir tíma
Stuðningur við ríkisstjórnina
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 80,3% afstöðu til spurningarinnar.
Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 937 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 28. til 31. júlí 2014