Reykjavik logo 70pxMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í Reykjavík.
Gagnaöflun vegna könnunarinnar fór fram á tímabilinu 26. til 28. maí 2014. 
Samanlagt fylgi Samfylkingar og Bjartrar framtíðar mælist nú 54,9% borið saman við 53,5% frá síðustu könnun (sem stóð yfir dagana 20. til 23. maí síðastliðinn).
Samfylking bætir við sig fylgi og Framsóknarflokkur næði inn borgarfulltrúa.


Fylgi Samfylkingar mældist nú 32,7% borið saman við 29,5% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 22,2% borið saman við 24,0% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,6% borið saman við 21,2% í síðustu könnun. Fylgi Pírata mældist nú 7,5% borið saman við 8,2% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokks og flugvallarvina mældist nú 6,8% borið saman við 5,3% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 6,8% borið saman við 9,0% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 3%. Yrðu þetta niðurstöður kosninganna myndi Samfylkingin fá fimm borgarfulltrúa, Björt framtíð fjóra, Sjálfstæðisflokkur þrjá og Píratar, Vinstri græn og Framsóknarflokkur og flugvallarvinir einn borgarfulltrúa hvert framboð.

 

1405 FylgiRvk 2

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til borgarstjórnar í Reykjavík í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 85,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,1%), myndu skila auðu (5,1%), myndu ekki kjósa (2,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,0%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu könnun þar á undan (birt 23. maí 2014). 

Tengt efni:

2014 maí: MMR könnun: Samfylking og Björt framtíð með meirihluta í borginni

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Reykvíkingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 917 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 26. til 28. maí 2014