Alþingiskosningar

|

kosningar-logoMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 25. til 28. febrúar 2014.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 40,9% en mældist 46,6% í síðustu mælingu (sem lauk þann 15. febrúar s.l.) og  46,0% í janúar s.l.


Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 29,0%, borið saman við 29,7% í könnun frá miðjum febrúar og 26,3% frá í janúar. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 16,4%, borið saman við 14,8% í síðustu könnun og 15,9% í janúar. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 14,6%, borið saman við 15,6% í síðustu könnun og 17,0% frá í janúar. Samfylkingin mældist nú með 14,0% fylgi, borið saman við 13,2% í síðustu könnun og 17,0% í janúar. Vinstri-græn mældust nú með 10,4% fylgi, borið saman við 11,5% í síðustu könnun og 11,0% í janúar. Pírataflokkurinn mældist nú með 9,3% fylgi, borið saman við 8,8% fylgi í síðustu könnun og 6,9% í janúar. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

 

1402 2 fylgi 01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,5%), myndu skila auðu (6,3%), myndu ekki kjósa (3,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,0%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil. 

 

Þróun yfir tíma

1402 2 fylgi 02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

 

1402 2 suport 01 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 84,8% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1013 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 25. til 28. febrúar 2014