MMR kannaði á tímabilinu 29. nóvember til 17. desember 2013 viðhorf stjórnenda íslenskra fyrirtækja til horfa í íslensku hagkerfi sem og mikilvægra þátta í rekstarumhverfi þeirra eigin fyrirtækja til næstu 12 mánaða.
Niðurstöðurnar sýna að fleiri stjórnendur eiga von á að launakostnaður aukist á næstu 12 mánuðum en í síðustu mælingu (júlí 2013) en færri eiga von á að arðsemi aukist. Af þeim sem tóku afstöðu í desember 2013 sögðust 69,8% telja að launakostnaður muni aukast hjá sínu fyrirtæki á næstu 12 mánuðum, borið saman við 60,8% í júlí 2013.
Í desember 2013 sögðust 43,7% stjórnenda telja að arðsemi hjá sínu fyrirtæki muni aukast á næstu 12 mánuðum, borið saman við 47,5% í júlí 2013.
Spurt var sex spurninga: Hvernig telur þú að þróun eftirtalinna atriða verði hjá fyrirtæki þínu næstu 12 mánuði í samanburði við síðustu 12 mánuði?: Velta, arðsemi, eftirspurn eftir vöru/þjónustu, samkeppnishæfni, markaðsstarf og fjöldi starfsmanna.
Svarmöguleikar voru: Minnki mikið, minnki eitthvað, óbreytt, aukist eitthvað, aukist mikið, veit ekki og vil ekki svara. Á myndinni má sjá hlutfall þeirra sem svaraði hverri spurningu með aukist eitthvað eða aukist mikið. Spurðir voru 673 einstaklingar og var afstaða til spurninganna á bilinu 95,5% til 97,6%.
Meirihluti stjórnenda bjartsýnn á horfur íslensks hagkerfis til fyrir árið 2014
Meirihluti stjórnenda er bjartsýnn á horfur íslensks hagkerfis fyrir árið 2014. Þeim hefur þó fækkað frá því í júlí 2013 sem töldu að hagkerfið muni vaxa á næstu 12 mánuðum. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 58,9% stjórnenda telja að íslenska hagkerfið muni vaxa á næstu tólf mánuðum, borið saman við 70,5% í júlí 2013.
Spurt var: „Hverjar telur þú horfur íslensks hagkerfis vera til næstu 12 mánaða?“
Svarmöguleikar voru: Hagkerfið mun dragast mikið saman, hagkerfið mun dragast lítillega saman, stærð hagkerfisins mun standa í stað, hagkerfið mun vaxa lítillega, hagkerfið mun vaxa mikið, veit ekki og vil ekki svara.
Samtals tóku 96,6% afstöðu til spurningarinnar.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Stjórnendur í fyrirtækjum á Íslandi (forstjórar, framkvæmda-, fjármála- og markaðsstjórar)
Könnunaraðferð: Netkönnun
Svarfjöldi: 673 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 29. nóvember til 17. desember 2013
Eldri kannanir sama efnis:
Júlí 2013: MMR stjórnendakönnun
Apríl 2011: MMR stjórnendakönnun