MMR kannaði hvað fólk ætlaði að borða í aðalrétt á jóladag. Líkt og fyrri ár lítur út fyrir að hangikjöt verði langvinsælasti aðalrétturinn á borðum landsmanna á jóladag. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 70,6% ætla að borða hangikjöt á jóladag, 7,1% sögðust ætla að borða hamborgarhrygg, 4,8% sögðust ætla að borða annað lambakjöt en hangikjöt, 4,2% sögðust ætla að borða kalkún og 13,1% sögðust ætla að borða eitthvað annað en fyrrgreinda kosti.
Spurt var: „Hvað er líklegast að þú munir borða sem aðalrétt á jóladag?“ Svarmöguleikar voru: Fiskur/sjávarfang, gæs, grænmetisfæði, hangikjöt, hamborgarhryggur, hreindýrakjöt, kalkúnn, kjúklingur, lambakjöt (annað en hangikjöt), nautakjöt, rjúpur, svínakjöt (annað en hamborgarhryggur), önd, annað kjöt, annað og veit ekki/vil ekki svara. Samtals tóku 95,5% afstöðu til spurningarinnar.
Framsóknarfólk líklegast til að borða hangikjöt á jóladag, Píratar ólíklegastir
Af þeim sem tóku afstöðu og kváðust styðja Framsóknarflokkinn sögðust 83,1% ætla að borða hangikjöt á jóladag, borið saman við 51,4% þeirra sem kváðust styðja Pírata.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 955 einstaklingar
Dagsetning framkvæmdar: 13.-17. desember 2013
Eldri kannanir sama efnis:
2012 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á jóladag
2011 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á jóladag
2010 desember: MMR könnun: hvað verður á borðum fólks á jóladag
Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.