Alþingiskosningar

|

kosningar-logoMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 25. til 29. október 2013. 
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 28,6%, borið saman við 26,5% í síðustu mælingu. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,5%, borið saman við 17,3% í síðustu mælingu. Vinstri-græn mældust nú með 14,8% fylgi, borið saman við 12,6% í síðustu mælingu. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 13,2%, borið saman við 15,4% í síðustu mælingu. Björt framtíð mældist nú með 12,1% fylgi, borið saman við 12,2% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mældist nú með 8,4% fylgi, borið saman við 7,7% í síðustu mælingu.

Dögun mældist með 1,9% fylgi, Hægri grænir með 1,5% fylgi, Flokkur heimilanna með 1,2% fylgi, Lýðræðisvaktin með 1,0% fylgi, Regnbogaflokkurinn með 0,4% fylgi, Sturla Jónsson með 0,4% fylgi , Alþýðufylkingin með 0,1% fylgi, Húmanistaflokkurinn með 0,1% fylgi og Landsbyggðarflokkurinn með 0,1% fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 44,8% en mældist 44,0% í síðustu könnun.

 

1310 2 fylgi 01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 83,3% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,0%), myndu skila auðu (5,4%), myndu ekki kjósa (2,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,0%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil. 

 

Þróun yfir tíma

1310 2 fylgi 02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

 

1310 2 support 01 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 86,4% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1034 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 25. til 29. október 2013