Alþingiskosningar

|

kosningar-logoMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 10. til 15. október 2013. 
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 26,5%. Fylgi Samfylkingarinnar jókst nokkuð og mældist nú 17,3%, borið saman við 14,6% í síðustu mælingu. Fylgi Framsóknarflokksins mældist 15,4%. Vinstri græn mældust nú með 12,6% fylgi og Björt framtíð mældist með 12,2% fylgi. Pírataflokkurinn mældist með 7,7% fylgi.

Dögun mældist með 2,4% fylgi, Flokkur heimilanna með 1,3% fylgi, Hægri grænir með 1,2% fylgi, Lýðræðisvaktin með 1,1% fylgi, Regnbogaflokkurinn með 1,0% fylgi, Alþýðufylkingin með 0,4% fylgi og Sturla Jónsson með 0,3% fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 44,0% en mældist 47,4% í síðustu könnun.

 

1310 fylgi 01 g

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,4%), myndu skila auðu (6,3%), myndu ekki kjósa (1,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,8%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil. 

 

Þróun yfir tíma

1310 fylgi 02 a

 

Stuðningur við ríkisstjórnina dalar

 

1310 support 01 a 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 85,8% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 937 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 10. til 15. október 2013