Ferataska LouisVuittonMMR kannaði á dögunum hvort fólk hefði hugsað um að flytja erlendis á síðastliðnum mánuðum. Hlutfall þeirra sem sögðust hafa hugsað um að flytja erlendis á síðastliðnum mánuðum var það sama og í nóvember 2011. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 40,0% hafa hugsað um að flytja erlendis á síðastliðnum mánuðum, nú borið saman við 39,9% í nóvember 2011. Meirihluti þeirra sem tóku afstöðu nú hafði þó ekki hugsað um að flytja erlendis eða 60,0%, borið saman við 60,1% í nóvember 2011.

Lítilsháttar breyting hefur orðið á ástæðum þess að fólk segist hugsa um að flytja erlendis. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 23,4% hafa hugsað um að flytja til útlanda á síðustu mánuðum vegna efnahagsástandsins nú, borið saman við 26,5% í nóvember 2011. Hlutfall þeirra sem sagðist hafað hugsað um að flytja erlendis á síðustu mánuðum af öðrum ástæðum var 16,6% nú borið saman við 13,3% í nóvember 2011.

  1310 flutningur erlendis 01Spurt var: „Hefur þú hugsað um að flytja erlendis á síðastliðnum mánuðum?"
Svarmöguleikar voru: „Já, vegna efnahagsástandsins, já, en vegna annarra ástæðna en efnahagsástandsins, nei, og veit ekki/vil ekki svara".
Samtals tóku 98,2% afstöðu til spurningarinnar.

  

Breytilegt milli hópa hvort fólk hafi hugsað um að flytja erlendis
Nokkur munur var á milli hópa hvort fólk hafði hugsað um að flytja erlendis á síðastliðnum mánuðum. Þeir sem eru yngri voru líklegri til að segjast hafa hugsað um að flytja erlendis en þeir eldri. Þeir sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu voru líklegri til hafa hugsað um að flytja erlendis en þeir sem bjuggu á landsbygðinni. Þeir sem höfðu hæstu og lægstu heimilistekjurnar voru líklegastir til að hafa hugsað um að flytja úr erlendis. Þeir sem styðja ríkisstjórnina voru ólíklegri til að hafa hugsað um að flytja erlendis en þeir sem ekki styðja ríkisstjórnina.
Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára) sögðust 56,0% hafa hugsað um að flytja erlendis, borið saman við 5,9% í elsta aldurshópnum (68 ára og eldri).

Af þeim sem tóku afstöðu og bjuggu á höfuðborgarsvæðinu sögðust 43,6% hafa hugsað um að flytja erlendis á síðastliðnum mánuðum, borið saman við 34,5% þeirra sem búsett voru á landsbyggðinni.

Af þeim sem tóku afstöðu og höfðu heimilistekjur undir 250 þúsund krónur á mánuði sögðust 52,9% hafa hugsað til þess að flytja erlendis á síðastliðnum mánuðum, borið saman við 39,9% í tekjuhópnum 250-399 þúsund, 39,4% í tekjuhópnum 400-599 þúsund og 29,9% í tekjuhópnum 600-799 þúsund. 46,6% þeirra sem höfðu 800 þúsund eða meira í heimilistekjur sögðust hafa hugsað um að flytja erlendis á síðastliðnum mánuðum.

Af þeim sem tóku afstöðu og og sögðust styðja ríkisstjórnina sögðust 32,0% hafa hugsað um að flytja erlendis á síðastliðnum mánuðum, borið saman við 47,5% þeirra sem ekki sögðust styðja ríkisstjórnina.

 1310 flutningur erlendis 02Spurt var: „Hefur þú hugsað um að flytja erlendis á síðastliðnum mánuðum?" Svarmöguleikar voru: „Já, vegna efnahagsástandsins, já, en vegna annarra ástæðna en efnahagsástandsins, nei og veit ekki/vil ekki svara". Þeir sem svöruðu 'Já, vegna efnahagsástandsins' og 'já, en vegna annarra ástæðna en efnahagsástandsins' voru sameinaðir í 'Já, hugsað um að flytja erlendis' Samtals tóku 98,2% afstöðu til spurningarinnar.

 

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 968 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 26. september til 1. október 2013

Eldri kannanir sama efnis:
2011 nóvember: MMR könnun á því hvort fólk hefði hugsað um að flytja erlendis á síðastliðnum mánuðum