blue skyMMR kannaði á dögunum viðhorf Íslendinga til þess að mismunandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi.
Flestir voru hlynntir því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi en fæstir voru fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fái að byggja trúarbyggingu. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 67,2% vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi og 8,5% voru því andvíg. 31,5% sögðust vera fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi en 43,4% voru því andvíg.

54,7% sögðust vera fylgjandi því að Ásatrúarfélagið fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi en 9,1% voru því andvíg.
41,7% sögðust vera fylgjandi því að Búddistafélagið fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi en 22,1% voru því andvíg.
32,9% sögðust vera fylgjandi því að Rússneska rétttrúnaðarkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi en 29,7% voru því andvíg.

1310 trufelog 01Spurt var: „Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ertu því að eftirfarandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi?
-með trúarbyggingum er átt við byggingar svo sem moskur, hof, kirkjur og musteri.“
Svarmöguleikar voru: 'Mjög andvíg(ur)', 'Frekar andvíg(ur)', 'Hvorki né', 'Frekar fylgjandi', 'Mjög fylgjandi' og 'Veit ekki/vil ekki svara'
Samtals tóku 95,5% afstöðu til spurningarinnar (þ.e. tóku afstöðu til amk. eins trúfélags)

 

Afstaða til þess að mismunandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi ólík eftir aldri og stjórnmálaskoðunum.
Hlutfall þeirra sem voru fylgjandi því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar var hærra á meðal þeirra sem eldri eru en á meðal þeirra sem yngri eru. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu elsta aldurshópnum (68 ára og eldri) sögðust 75,3% vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi, 76,2% meðal þeirra sem voru á aldrinum 60-67 ára og 75,2% á meðal þeirra sem voru á aldrinum 50-59 ára. Til samanburðar sögðust 58,3% á aldrinum 18-29 ára vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi og 58,2% á aldrinum, 30-39 ára.
Aftur á móti var hlutfall þeirra sem voru fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi hærra á meðal þeirra sem yngri eru en á meðal þeirra sem eldri eru. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu yngsta aldurshópnum sögðust 40,8% vera fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi, borið saman við 19,6% í elsta aldurshópnum (68 ára og eldri).

Þegar afstaða er skoðuð eftir stuðning við ríkisstjórnina kemur í ljós að stærra hlutfall þeirra sem styður ríkisstjórnina en þeirra sem styður ekki ríkisstjórnina gerir greinamun á trúfélögum þegar kemur að leyfi til að byggja trúarbyggingar á Íslandi.
Af þeim sem tóku afstöðu og sögðust styðja ríkisstjórnina sögðust 70,3% vera fylgjandi því að að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi en 20,3% sögðust vera fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi.
Af þeim sem sögðust ekki styðja ríkisstjórnina sögðust 66,5% vera fylgjandi því að að Þjóðkirkjan fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi en 44,8% sögðust vera fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi.

 

1310 trufelog fylgjandi a

 

1310 trufelog andvigir a

Í sömu könnun (á eftir þessari spurningu) var jafnframt spurt um afstöðu fólks til þess að trúfélög fái almennt úthlutað ókeypis lóðum undir trúarbyggingar. Sjá niðurstöður hér.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 968 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 26. september til 1. október 2013

Þróun milli mælinga:

Ekki var spurt um traust til Landsdóms í fyrri mælingum.