Alþingiskosningar

|

althingiMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 9. til 14. ágúst 2013. 
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 27,9%, borið saman við 29,7% í síðustu mælingu. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 18,1%, borið saman við 16,7% í síðustu mælingu. Samfylkingin mældist nú með 13,0% fylgi, borið saman við 13,5% í síðustu mælingu og Vinstri græn mældust nú með 14,4% fylgi, borið saman við 13,1% í síðustu mælingu. Björt framtíð mældist nú með 11,7% fylgi borið saman við 12,3% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mældist nú með 7,1% fylgi, borið saman við 8,4% í síðustu mælingu. 

Dögun mældust nú með 2,4% fylgi, Hægri grænir með 2,2% fylgi, Flokkur heimilanna með 0,8% fylgi, Lýðræðisvaktin með 0,7% fylgi, Regnboginn með 0,6% fylgi, Sturla Jónsson með 0,1% fylgi, Landsbyggðarflokkurinn með 0,1% og Alþýðufylkingin með 0,1% fylgi.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 49,3% en mældist 54,8% í síðustu könnun.

 

1308 fylgi 01 c

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 84,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (3,0%), myndu skila auðu (5,4%), myndu ekki kjósa (2,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,6%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil. 

 

Þróun yfir tíma

1308 fylgi 02

 

Tæpur helmingur styður ríkisstjórnina

 

1308 support 01 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 84,5% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 914 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 9. til 14. ágúst 2013