Alþingiskosningar

|

kosningar-logoMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 9. til 11. júlí 2013. 
Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst nokkuð og mældist nú 29,7%, borið saman við 26,5% í síðustu mælingu. Fylgi Framsóknarflokksins dalaði og mældist nú 16,7%, borið saman við 19,3% í síðustu mælingu. Samfylkingin mældist nú með 13,5% fylgi, borið saman við 14,4% í síðustu mælingu og Vinstri græn mældust nú með 13,1% fylgi, borið saman við 13,3% í síðustu mælingu.Björt framtíð mældist nú með 12,3% fylgi borið saman við 12,5% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mældist nú með 8,4% fylgi, borið saman við 6,9% í síðustu mælingu. 

Hægri grænir mældust nú með 1,9% fylgi, Lýðræðisvaktin með 1,5% fylgi, Dögun með 1,0% fylgi, Flokkur heimilanna með 0,6% fylgi, Sturla Jónsson með 0,5% fylgi, Landsbyggðarflokkurinn með 0,3%, Regnboginn með 0,2% fylgi, Alþýðufylkingin með 0,1% fylgi og Húmanistaflokkurinn með 0,1% fylgi.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 54,8% en mældist 51,1% í síðustu könnun.

 

1307 fylgi-flokka 01 2

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 86,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (3,4%), myndu skila auðu (4,1%), myndu ekki kjósa (1,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil. 

 

Þróun yfir tíma

1307 fylgi-flokka 02

 

Rúmur helmingur styður við ríkisstjórnina

 

1307 support 01 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 85,0% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 972 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 9. til 11. júlí 2013