MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 13. til 19. júní 2013. Stuðningur við ríkisstjórnina hefur dregist saman og mælist nú 55,8% en mældist 59,8% í síðustu könnun.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 27,3%, borið saman við 28,2% í síðustu mælingu og Framsóknarflokkurinn mælist nú með 19,9% fylgi, borið saman við 21,2% í síðustu mælingu. Samfylkingin mælst nú með 13,0% fylgi, borið saman við 11,7% í síðustu mælingu og Björt framtíð mælist nú með 12,5% fylgi borið saman við 11,2% í síðustu mælingu. Vinstri græn mælast nú með 12,4% fylgi, borið saman við 13,8% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mælist nú með 8,1% fylgi, borið saman við 6,6% í síðustu mælingu.
Dögun mælist nú með 2,0% fylgi, Hægri grænir með 1,8% fylgi, Lýðræðisvaktin með 1,6% fylgi, Flokkur heimilanna með 0,8% fylgi, Regnboginn með 0,6% fylgi, Sturla Jónsson með 0,1% fylgi, Landsbyggðarflokkurinn með 0,1% og Alþýðuflokkurinn með 0,1% fylgi.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 88,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (2,2%), myndu skila auðu (3,6%), myndu ekki kjósa (1,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,8%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil.
Þróun yfir tíma
Rúmur helmingur styður við ríkisstjórnina
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 79,7% afstöðu til spurningarinnar.
Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1014 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 13. til 19. maí 2013