MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 28. maí til 01. jún 2013. Stuðningur við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) mældist töluvert meiri en stuðningur við fráfarandi ríkisstjórn í síðustu mælingu. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 59,9% styðja ríkisstjórnina nú, borið saman við 31,5% sem sögðust styðja fráfarandi ríkisstjórn í síðustu mælingu (14 - 17 maí 2013).
Lítil breyting varð á fylgi flokka frá síðustu mælingu (Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt).
60% styðja ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (starfsstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 84,8% afstöðu til spurningarinnar.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 88,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (2,5%), myndu skila auðu (3,4%), myndu ekki kjósa (0,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,7%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil.
Þróun yfir tíma
Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1012 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 28. maí til 01. júní 2013