MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við fráfarandi ríkisstjórn (starfsstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna) á tímabilinu 14. til 17. maí 2013. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 28,4%, borið saman við 26,7% í síðustu mælingu og Framsóknarflokkurinn mælist nú með 19,9% fylgi, borið saman við 22,4% í síðustu mælingu.
Samfylkingin mælst nú með 11,7% fylgi, borið saman við 13,0% í síðustu mælingu og Vinstri græn mælast nú með 12,1% fylgi, borið saman við 11,6%. Björt framtíð mælist nú með 11,3% fylgi borið saman við 7,7% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mælist nú með 6,5% fylgi, borið saman við 7,5% í síðustu mælingu. Dögun mælist nú með 3,8% fylgi, Lýðræðisvaktin með 1,6% fylgi, Hægri grænir með 1,4% fylgi, Flokkur heimilanna með 1,2% fylgi, Regnboginn með 0,8% fylgi, Sturla Jónsson með 0,5% fylgi, Landsbyggðarflokkurinn með 0,5% og Alþýðuflokkurinn með 0,1% fylgi. Stuðningur við fráfarandi ríkisstjórnina mælist nú 31,5% en mældist 32,6% í síðustu könnun.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 87,1% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (1,9%), myndu skila auðu (3,0%), myndu ekki kjósa (2,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil.
Þróun yfir tíma
Þriðjungur styður við fráfarandi ríkisstjórn
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (starfsstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 89,2% afstöðu til spurningarinnar.
Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1011 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 14. til 17. maí 2013