Alþingiskosningar

|

althingiMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 22. til 25. apríl 2013. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 26,7%, borið saman við 27,5% í síðustu mælingu og Framsóknarflokkurinn mælist nú með 22,4% fylgi, borið saman við 25,6% í síðustu mælingu. Þrátt fyrir að munur á fylgi þessara tveggja flokka mælist nú 4,3 prósentustig er sá munur innan vikmarka (miðað við 95% vikmörk) og því ekki hægt að álykta að annar flokkurinn hafi meira raunfylgi en hinn.

Samfylkingin mælst nú með 13,0% fylgi, borið saman við 13,5% í síðustu mælingu og Vinstri græn mælast nú með 11,6% fylgi, borið saman við 8,1%. Björt framtíð mælist nú með 7,7% fylgi borið saman við 8,3% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mælist nú með 7,5% fylgi, borið saman við 6,7% í síðustu mælingu. Lýðræðisvaktin mælist nú með 3,5% fylgi, Dögun með 2,9% fylgi, Flokkur heimilanna með 1,8% fylgi, Hægri grænir með 1,3% fylgi, Sturla Jónsson með 0,8% fylgi, Regnboginn með 0,5% fylgi, Alþýðufylkingin með 0,1% og Landsbyggðarflokkurinn með 0,2% fylgi. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 32,6% en mældist 26,4% í síðustu könnun.

 

1304 04 vote 01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 88,0% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,2%), myndu skila auðu (4,4%), myndu ekki kjósa (1,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil. 

 

Þróun yfir tíma*

1304 04 vote 02

Þriðjungur styður við ríkisstjórnina

 

1304 04 support 01 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 89,2% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

Samanburður við eldri kannanir MMR:

*MMR gerir reglulegar kannanir um stjórnmálaviðhorf Íslendinga og hafa þær ýmist náð til aldurshópsins 18-67 ára eða 18 ára og eldri. Til að viðhalda samanburði yfir tíma hafa niðurstöður hins vegar yfirleitt verið birtar fyrir aldurshópinn 18-67 ára. Frá og með þessari könnun sem hér er birt er sú breyting aftur á móti gerð að niðurstöður kannana MMR um stjórnmálaviðhorf verða eingöngu birtar fyrir aldurshópinn 18 ára og eldri.

Fyrir áhugasama er hér birtur samanburður á niðurstöðum eftir því hvorn aldurshópinn er miðað við:

1304 04 agecompare

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri*, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1101 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 22. til 25. apríl 2013