Alþingiskosningar

|

althingiMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 17. til 18. apríl 2013. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi allra flokka á Íslandi. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú með 27,5% fylgi, borið saman við 22,9% í síðustu mælingu. Framsóknarflokkurinn mælist nú með 25,6% fylgi, borið saman við 32,7% í síðustu mælingu. Samfylkingin mælst nú með 13,5% fylgi, borið saman við 10,4% í síðustu mælingu og Vinstri græn mælast nú með 8,1% fylgi, borið saman við 6,7%. Björt framtíð mælist nú með 8,3% fylgi borið saman við 9,5% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mælist nú með 6,7% fylgi, borið saman við 9,0% í síðustu mælingu. Stuðningur við önnur framboð ýmist stóð í stað eða breyttist lítillega. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 26,4%.

 

1304 03 fylgi 01

1303 03 fylgi 02Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 86,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (3,8%), myndu skila auðu (5,5%), myndu ekki kjósa (1,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,3%). 

 

Fjórðungur styður við ríkisstjórnina

 

1304 03 support 01

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 85,8% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 859 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 17. til 18. apríl 2013