Alþingiskosningar

|

framsokn logoMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 22. til 25. mars 2013. Framsóknarflokkurinn heldur áfram að bæta við sig fylgi og mælist nú með mest fylgi allra flokka á Íslandi. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 29,5%, borið saman við 25,9% í síðustu mælingu. Sjálfstæðisflokkurinn missir áfram fylgi og mælist hann nú 24,4% borið saman við 27,2% í síðustu mælingu. Eins dalar fylgi Bjartrar framtíðar nokkuð og mælist nú 12,0% borið saman við 15,2% í síðustu mælingu. Stuðningur við önnur framboð ýmist stóð í stað eða breyttist lítillega. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 28,7%.

 

1303 2 fylgiflokka 01

1303 2 fylgiflokka 02Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,7% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,7%), myndu skila auðu (6,3%), myndu ekki kjósa (1,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,8%). 

 

Rúmur fjórðungur styður við ríkisstjórnina

 

1303 2 fylgiflokka 03

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 84,4% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 893 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 22. til 25. mars 2013