Alþingiskosningar

|

althingiMMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 7. til 12. mars 2013. Sjálfstæðisflokkurinn missir áfram fylgi og mældist það 27,2% nú, borið saman við 28,5% í síðustu mælingu. Framsóknarflokkurinn heldur áfram að bæta við sig fylgi og stendur það nú í 25,9%, borið saman við 23,8% í síðustu mælingu. Stuðningur við önnur framboð ýmist stóð í stað eða breyttist lítillega. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 26,5%.

 

1303 fylgiflokka 01

1303 fylgiflokka 02
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 79,9% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,7%), myndu skila auðu (7,8%), myndu ekki kjósa (1,5%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (3,1%).
 

 

Rúmur fjórðungur styður við ríkisstjórnina

 

1303 support 01

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 82,6% afstöðu til spurningarinnar. 

 

 Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 875 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 7. til 12. mars 2013