Samkvæmt nýjustu fylgiskönnun MMR sem framkvæmd var á á tímabilinu 19. til 21. febrúar 2013 mældist fylgi Sjálfstæðisflokksins vera 28,5%. Þetta er minnsta fylgi Sjálfstæðisflokkins sem mælst hefur frá því fyrir síðustu Alþingiskosningar. Framsóknarflokkurinn heldur áfram að bæta við sig fylgi og stendur það nú í 23,8%. Fylgi Samfylkingar heldur áfram að dragast saman og mælist nú 12,8%. Stuðningur við Bjarta framtíð dalar úr 17,8% í 15,3%. Önnur framboð ýmist standa í stað eða bæta heldur við sig. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 26,7%.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 78,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,8%), myndu skila auðu (6,1%), myndu ekki kjósa (2,4%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,1%).
Rúmur fjórðungur styður við ríkisstjórnina
Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 83,7% afstöðu til spurningarinnar.
Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 814 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 19. til 21. febrúar 2013