MMR kannaði nýlega afstöðu almennings til þess að Ísland gangi í Evrópusambandið. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 24,2% hlynnt því að Ísland gangi í Evrópusambandið nú, borið saman við 25,0% í síðustu mælingu (15-20 janúar 2013). Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 63,3% vera andvíg því að Ísland gengi í Evrópusambandið nú, borið saman við 62,7% í janúar.
Spurt var: Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að Ísland gangi í Evrópusambandið (ESB)? Svarmöguleikar voru: Mjög andvíg(ur), frekar andvíg(ur), hvorki andvíg(ur) né hlynnt(ur), frekar hlynnt(ur), mjög hlynnt(ur), veit ekki og vil ekki svara. Samtals tóku 86,1% afstöðu til spurningarinnar.
Afstaða til þess að Ísland gangi í Evrópusambandið breytileg eftir kyni, aldri, stuðningi við ríkisstjórnina og stuðningi við stjórnmálaflokka
Afstaða til þess að Ísland gangi í Evrópusambandið var breytileg á milli hópa. Karlar voru hlynntari inngöngu Íslands í ESB en konur en af þeim sem tóku afstöðu sögðust 28,5% karla hlynntir, borið saman við 19,2% kvenna.
Þeim sem voru hlynnt inngöngu Íslands í ESB fjölgar hlutfallslega með auknum aldri. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára) voru 15,6% hlynnt inngöngu Íslands í ESB, á aldrinum 30-49 ára voru 23,2% hlynnt inngöngu og í elsta aldurshópnum (50-67 ára) voru 33,2% hlynnt inngöngu Íslands í ESB.
Íbúar höfuðborgarsvæðisins voru frekar hlynntir inngöngu Íslands í ESB en þeir sem búsettir voru á landsbyggðinni. Af þeim sem tóku afstöðu og bjuggu á höfuðborgarsvæðinu sögðust 28,2% hlynntir því að Ísland gangi í ESB, borið saman við 18,8% þeirra sem búsettir voru á landsbyggðinni.
Hlutfall þeirra sem voru hlynnt inngöngu Íslands í ESB hækkaði með auknum tekjum, að undanskildum efsta tekjuflokki (800 þúsund eða hærra). Af þeim sem tóku afstöðu og voru með heimilistekjur undir 250 þúsund krónur á mánuði voru 14,6% hlynnt því að Ísland gangi í ESB, borið saman við 19,6% þeirra sem höfðu tekjur á bilinu 250-399 þúsund, 26,2% þeirra sem höfðu tekjur á bilinu 400-599 þúsund og 32,2% þeirra sem höfðu tekjur á bilinu 600-799 þúsund. Af þeim sem tóku afstöðu og voru í efsta tekjuflokk (800 þúsund á mánuði eða hærra) sögðust 24,2% hlynnt því að Ísland gangi í ESB.
Mikill munur var á afstöðu fólks eftir því hvort það kvaðst styðja ríkisstjórnina eða ekki. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu ríkisstjórnina voru 54,4% hlynnt því að Ísland gangi í ESB, borið saman við 11,7% þeirra sem ekki styðja ríkisstjórnina.
Einnig var mikill munur á afstöðu fólks til þess að Ísland gangi í Evrópusambandið eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Nokkur munur var á afstöðu á meðal þeirra sem studdu ríkisstjórnarflokkanna. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Samfylkinguna voru 78,0% hlynnt því að Ísland gangi í ESB, borið saman við 22,3% þeirra sem studdu Vinstri græn. Hlutfallslega fæstir þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn voru hlynnt því að Ísland gangi í ESB. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Sjálfstæðisflokkinn voru 7,4% hlynnt inngöngu í ESB og 7,7% þeirra sem studdu Framsóknarflokkinn.
Smelltu hér til að sjá þróun mælinga á myndrænan hátt
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 874 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 31. janúar til 6. febrúar 2013
Niðurstöðurnar á PDF:1302_tilkynning_ESB.pdf
Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.