byssuskapurMMR kannaði hvort að skotvopn væru á heimilum fólks og hvernig þau væru þá geymd. Skotvopn reyndust vera á tæpum fjórðungi heimila en af þeim sem tóku afstöðu sögðu 23,5% skotvopn vera á heimilinu og 76,5% sögðu engin skotvopn vera á heimilinu.

 


 1301 skotvopn03 01Spurt var: „Eru skotvopn á þínu heimili?“
Svarmöguleikar voru: „Já,“, „Nei“ og „veit ekki/vil ekki svara“. Samtals tóku 98,7% afstöðu til spurningarinnar.

 

Skotvopn geymd í sérgerðum vopnaskáp á heimilum tæps helmings skotvopnaeigenda

Á meirihluta þeirra heimila sem skotvopn voru til staðar voru gerðar einhverskonar ráðstafanir varðandi geymslu skotvopna. Þrátt fyrir að meirihluti geri ráðstafanir varðandi geymslu skotvopna vekur það athygli að skotvopn eru geymd í sérgerðum vopnaskáp á heimilum tæplega helmings skotvopnaeigenda. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 43,9% að skotvopn væru geymd í sérútbúnum vopnaskáp, 11,2% sögðu að skotvopn væru geymd í læstri hirslu, með gikklás, 10,5% sögðu að skotvopn væru geymd í læstri hrislu en þó ekki með gikklás og 15,5% sögðu að skotvopn væru geymd í ólæstum hirslum, með gikklás.
     Tæpur fimmtungur sagðist gera litlar eða engar ráðstafanir varðandi geymslu skotvopna. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 18,8% geyma skotvopn í ólæstum hirslum, án gikkláss eða ekki gera neinar sérstakar ráðstafanir varðandi geymslu skotvopna.

 

1301 skotvopn04 01Spurt var: „Hvernig eru skotvopn geymd á þínu heimili?“
Svarmöguleikar voru: „Í sérútbúnum vopnaskáp, samþykktum af lögreglustjóra,“, „Í læstri hirslu, annari en sérútbúnum vopnaskáp, með gikklás.“, „Í læstri hirslu, annari en sérútbúnum vopnaskáp, án gikkláss.“, „Í ólæstum hirslum, með gikklás“, „Ekki eru gerðar neinar sérstakar ráðstafanir varðandi geymslu skotvopna á mínu heimili“, Annað, hvernig? og „veit ekki/vil ekki svara“.
Samtals tóku 89,3% afstöðu til spurningarinnar.

 

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 827 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 15.-20. janúar 2013

Niðurstöðurnar á PDF:
pdf1301_tilkynning_skotvopn_2.pdf

Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.