MMR kannaði hvað almenningi fannst um Áramótaskaupið 2012. Nokkuð minni ánægja ríkti með Skaupið 2012 borið saman við 2011. Af þeim sem tóku afstöðu til Skaupsins 2012 sögðu 32,7% að þeim hefði þótt það gott, borið saman við 64,8% í fyrra. Þar að auki sögðu 47,4% að skaupið 2012 hefði verið slakt, borið saman við 17,2% í fyrra.
Spurt var: „Hvernig fannst þér Áramótaskaupið 2012?“ Svarmöguleikar voru: „Mjög slakt“, „Frekar slakt“, „Bæði og“, „Frekar gott“, „Mjög gott“, „Ég horfði ekki á Áramótaskaupið“ og „Veit ekki/vil ekki svara“. Samtals tóku 98,2% afstöðu (aðrir svöruðu „Veit ekki/vil ekki svara“ eða „Ég horfði ekki á Áramótaskaupið“).
Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins síst hrifið af Skaupinu
Samkvæmt könnuninni var nokkur munur á viðhorfi fólks til Skaupsins eftir stjórnmálaskoðunum. Þannig sögðust 49,3% þeirra sem jafnframt tóku afstöðu og sögðust styðja ríkisstjórnina að þeim hefði þótt skaupið gott, borið saman við 27,4% þeirra sem sögðust ekki styðja ríkisstjórnina. Þá voru ekki nema 23,0% þeirra sem studdu Sjálfstæðisflokkin sem sögðu að þeim hefði þótt Áramótaskaupið gott og 59,2% þótti það slakt.
Mest ánægja með Áramótaskaupið ríkti meðal stuðningsfólks Vinstri grænna. Af þeim sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðu 50,6% að þeim hefði þótt skaupið gott og 23,1% sögðu að þeim hefði þótt skaupið slakt.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 827 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 15.-20. janúar 2013
Eldri kannanir sama efnis:
2012 janúar: MMR könnun: Viðhorf fólks til Áramótaskaupsins 2012
Niðurstöðurnar á PDF:1301_tilkynning_skaup.pdf
Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.