MMR kannaði traust almennings til helstu stofnana á sviði réttarfars og dómsmála. Að undanskildu embætti sérstaks saksóknara, þá hefur traust til allra stofnana sem könnunin nær til aukist frá síðustu mælingu frá í febrúar 2011.
Af þeim stofnunum sem mældar voru naut Landhelgisgæslan sem fyrr mest trausts. Alls sögðust 87,3% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til hennar. Traust til Landhelgisgæslunnar hefur aukist nokkur frá því í febrúar 2011 þegar 80,8% sögust bera mikið traust til hennar.
Traust á dómskerfinu í heild hefur aukist nokkuð og sögðust 44,5% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til þess, borið saman við 33,6% í febrúar 2011. Í könnuninni nú mældist Ríkislögreglustjóri njóta trausts 64,9% þeirra sem tóku afstöðu og 50,7% sögðust bera mikið traust til Ríkissaksóknara. Traust til Hæstaréttar hækkar nokkuð frá því í febrúar 2011 þegar 38,8% sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar, borið saman við 53,2% nú. Jafnframt hefur hlutfall þeirra sem bera lítið traust til Hæstaréttar minnkað talsvert á milli mælinga, úr 34,7% í febrúar 2011 í 19,5% nú.
Traust til Útlendingastofnunar eykst nokkuð frá því í febrúar 2011 þegar 22,2% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar, borið saman við 27,4% nú.
Traust til embættis sérstaks saksóknara hefur dregist nokkuð saman frá því í febrúar 2011 þegar 59,8% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar borið saman við 51,8% nú.
Spurt var: Hversu mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila. Svarmöguleikar voru: Mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust og veit ekki/vil ekki svara. Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust. Samtals tóku 97,0% afstöðu til spurningarinnar.
*marktækur munur milli tveggja síðustu mælinga
*marktækur munur milli tveggja síðustu mælinga
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 879 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 9.-13. nóvember 2012
Eldri kannanir sama efnis:
2011 febrúar: MMR könnun: Traust til stofnana á sviði réttarfars og dómsmála
2010 október: MMR könnun: Traust til stofnana á sviði réttarfars og dómsmála
2009 október: MMR könnun: Traust til stofnana á sviði réttarfars og dómsmála
Niðurstöðurnar á PDF:1211_tilkynning_traustdoms.pdf
Notkun heimil svo lengi sem heimilda (vörumerkis MMR) er getið.
Allur réttur áskilinn: 2006 © Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.